Björn biðst undan því að vera bendlaður við REI 8. október 2007 23:14 Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra. MYND/Pjetur
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, biðst undan því á bloggsíðu sinni að nafn hans sé „nefnt í tengslum við þessar uppákomur hjá OR og REI síðustu daga." Björn Ingi Hrafnsson benti á það í Kastljósi Ríkisútvarpsins að Björn hafi setið í stjórn Orkuveitunnar þegar ákvörðanir voru teknar um ENEX. Björn segist hafa gagnrýnt alla málsmeðferð í sambandi við sameiningu REI og Geysi green energy og að hans mati er hún engum til sóma. „Um langt árabil hefur Íslendinga dreymt um að geta nýtt jarðhitaþekkingu sína á alþjóðavettvangi," segir Björn á bloggi sínu. „Þróun orkuverðs undanfarin misseri gerir kleift að nýta orkugjafa, sem áður vöktu ekki sérstakan áhuga. Að verja eigi eignum Reykvíkinga til áhættufjárfestinga á Filippseyjum eða í Indónesíu á ekkert skylt við skoðanir mínar á útrás á þessu sviði - vilji einstaklingar eða fyrirtæki þeirra hætta fé sínu á þennan hátt hafa þeir fullt frelsi til þess." Hann segist hins vegar ekki skilja hvers vegna menn leggi svo mikla áherslu á að sameina útrásarfyrirtækin í orkugeiranum. „Hvers vegna eru svona margar íslenskar fjármálastofnanir að sinna alþjóðlegum verkefnum?," spyr Björn. „Af hverju taka þær ekki höndum saman í einu íslensku fjármálafyrirtæki á alþjóðavettvangi? Á sínum tíma sameinuðust fiskframleiðendur um sölusamtök til að styrkja stöðu sína á alþjóðamörkuðum - sá tími er liðinn við fisksölu. Nú er hins vegar talað um þessa aðferð sem sérstakt bjargráð við útflutning á jarðhitaþekkingu."
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Sjá meira