Innlent

Sýndi norsku lögreglunni Lucky Day

Lucky Day á Fáskrúðsfirði.
Lucky Day á Fáskrúðsfirði. MYND/Jóhanna
Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði segist ekki hafa komið nálægt smygluna. Hann sýndi norksum lögreglumönnum skútuna Lucky Day sem liggur við festar í Stafangri.

Í gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar yfir þeim Guðbjarna Traustasyni og Alvari Óskarssyni sem handteknir voru um borð í smyglskútunni kemur fram að þeir reyndu að flýja lögreglu, með snarræði tókst henni að koma í veg fyrir það og voru þeir félagar handteknir um borð í skútunni.

Fimm sitja í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna málsins, þeir Alvar og Guðbjarni, bílstjórinn sem hugðist sækja þá á Fáskrúðsfjarðarbryggju og svo Bjarni Hrafnkelsson og Einar Jökull Einarsson en þeir tveir eru taldir vera höfuðpaurarnir í málinu. Bjarni og Einar Jökull kærðu báðir gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar sem í dag staðfesti hann. Bjarni hefur staðfastlega neitað sök í málinu.

Þá situr einn maður í gæsluvarðhaldi í Færeyjum og í dag fóru tveir lögreglumenn héðan til Færeyja í tengslum við rannsóknina. Þeir munu síðan halda til Danmerkur til frekari rannsókna þar.

Logi Freyr Einarsson sem handtekinn var í Noregi vegna málsins er nú frjáls ferða sinna. Hann sýndi í gær lögreglumönnum í Stafangri seglskútuna Lucky Day sem liggur að bryggju skammt utan við bæinn. Eins og fram hefur komið í fréttum þá sigldi Einar Jökull, bróðir Loga Freys skútunni til Fáskrúðsfjarðar fyrir tveimur árum og hefur lögreglan hér á landi meðal annars rannsakað hvort hún hafi verið notuð til innflutnings á fíkniefnum. Í samtali við Bryndísi Hólm, fréttaritara Stöðvar 2 í Noregi, segist lögfræðingur Loga Freys hann hafa verið samstarfsfúsan við lögreglu ytra enda hafi hann ekkert að fela.

Logi Freyr sagði í samtali við fréttastofu ekki tengjast smygli á fíkniefnum til Íslands, hann hafi aðeins dregist inn í þetta mál vegna bróður síns. Hann segist miður sín yfir því að Einar Jökull skuli sitja í gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×