Körfubolti

Stelpurnar töpuðu í Noregi

Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu.
Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu.

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði í dag fyrir Noregi í B-deild Evrópukeppni landsliða. Lokatölur leiksins voru 55-38. Norska liðið var of stór biti fyrir það íslenska og hafði frumkvæðið allan leikinn.

Íslenska liðið byrjaði illa og lenti undir í fyrsta leikhluta en náði að minnka muninn aftur í áður en fyrri hálfleik lauk.

Helena Sverrisdóttir skoraði átján stig og tók fimmtán fráköst fyrir Ísland en það dugði þó skammt því enginn annar leikmaður liðsins náði að skora meira en fimm stig í leiknum.

Það var töluvert meiri dreifing á stigaskori norska liðsins en fjórir leikmenn liðsins skoruðu meira en níu stig.

Upplýsingar af vefsíðu KKÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×