Fótbolti

Playboydómarinn sér ekki eftir neinu

Ana Paula Oliveira í Playboy-heftinu umdeilda
Ana Paula Oliveira í Playboy-heftinu umdeilda Mynd/Playboy

Brasilíski aðstoðardómarinn Ana Paula Oliveira segist alls ekki sjá eftir því að hafa setið fyrir nakin í tímaritinu Playboy á sínum tíma, en hún hefur ekki fengið að dæma alvöruleik síðan. Hún hefur þó ekki hætt dómgæslu og hefur að mestu flaggað áhugamannaleiki.

Ana hefur alla tíð verið mjög umdeild í heimalandi sínu og var meðal annars sett í bann fyrir að gera fjölda mistaka í bikarleik. Ekki kom hún sér betur í náðina hjá knattspyrnusambandinu þegar hún ákvað að taka fyrirsætustörfin skrefinu lengra og bera sig fyrir Playboy-tímaritið. Hún hefur þó ekki gefið upp alla von um að fá að dæma alvöru leiki á ný.

"Ég vil að það sé á hreinu að ég sé ekki eftir neinu, þvert á móti. Ég er sterk persóna og fæ öflugan stuðning hvar sem ég kem. Fólk segir mér að ég muni ná takmarki mínu einn daginn ef ég bara er trú því sem ég er að gera og held áfram ótrauð. Það er ekki eins gaman að dæma áhugamannaleiki, en það hjálpar," sagði Ana við blaðamenn eftir að hún var línuvörður á leik í smábæ um 450 km frá Sao Paulo.

Það vakti athygli að gríðarlegur fjöldi áhorfenda mætti á leikinn, nokkur þúsund manns, sem eru fleiri áhorfendur en mæta á suma leiki í efri deildunum í Brasilíu. Ekki virtust þeir allir vera mættir til að fylgjast með leiknum sjálfum.

Oliveira hefur ekki enn verið sett í formlegt bann eftir að hún sat fyrir nakin í júlíhefti Playboy, en hún felldi tár skömmu síðar þegar hún bað knattspyrnusambandið um að leyfa sér að dæma á ný. "Ég mun gera hið ómögulega til að fá að snúa aftur," sagði þessi frægi dómari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×