Krufning Parisar Hilton Sigríður Elva Viilhjálmsdóttir skrifar 11. maí 2007 14:34
Paris Hilton er fyrirmynd. Að minnsta kosti fyrirmynd höggmyndar sem listamaðurinn Daniel Edwards mun opinbera í Brooklyn í dag. Verkið, ,,Krufning Paris Hilton" sýnir glamúrgelluna látna, nakta, með glennta fætur og farsíma í hendi. Með þessu vill listamaðurinn vekja athygli á hættum ölvunaraksturs, en hótelerfinginn Hilton var á dögunum dæmd til 45 daga fangelsisvistar fyrir brot á skilorði fyrir að keyra drukkin. ,,Þetta ætti að vekja alla þá sem taka sér Paris Hilton til fyrirmyndar til umhugsunar." sagði Edwards. Listamaðurinn hefur meðal annars gert risavaxna eftirmynd af höfði Fídels Kastró og styttu í raunstærð af Britney Spears, nakinni á bjarnarfeldi að fæða barn. Paris Hilton segist reiðubúin að taka afleiðingum gjörða sinna. ,,Ég er ekki yfir lögin hafin frekar en hver annar" sagði Hilton. ,,Ég býst ekki við vægari dómi en hver annars sem brýtur skilorð, þó ég voni að ekki verði farið verr með mig en aðra." Nú stendur yfir undirskriftasöfnun til hvetja Arnold Schwarzenegger ríkisstjóra Kaliforníu til að náða Hilton. Alls hafa 22.147 manns skrifað undir beiðnina, sem hefst á þessum orðum: ,,Paris Whitney Hilton er amerísk stjarna og samkvæmisljón. Hún mun erfa hluta auðæfa Hilton hótelkeðjunnar, ásamt fasteignaauðæfum föður síns, Richard Hilton. Hún veitir ungu fólki um gervöll Bandaríkin og heiminn von. Hún veitir fegurð og spennu inn í hversdagsleg líf okkar" Beiðnina má lesa í heild sinni hér
Mest lesið Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Lífið Felix kveður Eurovision Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Skúli bauð Grímu að fara frá sér í kjölfar falls WOW air Lífið Felix víkur og óvissa með Gísla Martein Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Fleiri fréttir Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Sjá meira