Innlent

Uppákomur í Álafosskvosinni um helgina

Álafosskvos
Álafosskvos MYND/Vilhelm

Á næstkomandi laugardag standa íbúar, listamenn og vinnustaðir í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ fyrir uppákomum á svæðinu. Ákveðið var fyrir skömmu að stöðva tímabundið lagningu Helgafellsvegar um Álafosskvosina en fjöldi íbúa á svæðinu hefur lagst gegn lagningu vegarins.

Dagskrá verður í gangi frá klukkan tvö til fimm og ætlar Álafosskórinn að taka nokkur lög auk þess ljósmyndasýning verður opnuð og ullarvöruverslunin Álafossbúðin verður opin gestum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×