Innlent

Greiða atkvæði um deiliskipulag vegna álvers 31. mars

Frá blaðamannafundi Hafnarfjarðarbæjar í dag.
Frá blaðamannafundi Hafnarfjarðarbæjar í dag.

Hafnfirðingar greiða atkvæði um það hvort álverið í Straumsvík verði stækkað þann 31. mars næstkomandi nái tillaga meirihluta Samfylkingarinnar á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag fram að ganga. Þetta kom fram á blaðamannafundi Hafnarfjarðarbæjar vegna nýs deiliskipulags í tengslum við fyrirhugaða stækkun álversins í dag.

Það eru fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sem leggja fram deiliskipulagið og mun meirihluti þeirra Hafnfirðinga sem tekur þátt í kosningunni ráða því hvort deiluskipulagið fari í lögformlegt ferli og álverið þar með stækkað.

Samkvæmt deiliskipulaginu á þynningarsvæði álversins, sem er það svæði þar sem mengun er talin of mikil, að minnka úr tíu kílómetrum í þrjá og þá er gert ráð fyrir því að útblástur brennisteinsdíoxíðs og flúors dragist saman um helming þannig að mengun frá álverinu eftir stækkun verði sambærilega og hún er nú.

Þá vilja bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að ríkið gangi frá samkomulagi um færslu Reykjanesbrautar vegna stækkunarinnar og sömuleiðis að Landsnet gangi frá flutningi raflína og mastra en gert er ráð fyrir að raflínur verði að hluta til í jörðu.

Enn fremur vilja bæjaryfirvöld að skattamálum Alcan verði breytt á þann hátt að fyrirtækið verði skattlagt eins og önnur fyrirtæki í landinu en með því er reiknað með að tekjur bæjarins vegna álversins aukist úr 70 milljónum króna í 200 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×