Íslenski boltinn

KR: Upphæðin lægri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jónas Guðni Sævarsson og Jónas Kristinsson skrifa undir samninginn í gær.
Jónas Guðni Sævarsson og Jónas Kristinsson skrifa undir samninginn í gær. Mynd/E. Stefán

Baldur Stefánsson, formaður meistaraflokksráðs KR, segir að félagið hafi ekki greitt sex milljónir fyrir Jónas Guðna Sævarsson.

Baldur segir að hið rétta sé að umrædd upphæð sé talsvert lægri. Vísir greindi frá því fyrr í dag að KR hafi reitt fram tæpar sex milljónir króna fyrir Jónas Guðna og fór fram á við Baldur að hann gæfi upp rétt kaupverð samkvæmt samningi.

Baldur sagði að KR væri bundið trúnaði í sínum samningsmálum og gæti því ekki orðið við ósk Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×