Hafa keypt fyrirtæki upp á 544 milljarða Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. október 2007 07:00 Kaupþing á 78 prósent upphæðarinnar.
Viðskiptabankarnir þrír hafa eytt sem svarar 544 milljörðum króna í helstu fyrirtækjakaup og yfirtökur í vexti sínum utan landsteinanna síðustu ár. Til samanburðar má nefna að heildarskuldir heimilanna við bankakerfið vegna húsnæðiskaupa voru heldur lægri en sú upphæð í lok september. Þá námu þær rúmum 458 milljörðum króna, samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands. Ljóst er að Kaupþing er langstórtækastur bankanna í kaupum og yfirtökum, en hann ber ábyrgð á 78 prósentum upphæðarinnar, eða rúmum 426 milljörðum króna miðað við gengi evru í gær. Þannig liggur við að af hverjum fimm krónum sem bankarnir hafa eytt í útrásina hafi Kaupþing borgað fjórar. Kostnaður Kaupþings skiptist þannig að þrír milljarðar evra eru til komnir vegna kaupanna á hollenska bankanum NIBC. Singer & Friedlander kostaði bankann svo nálægt 800 milljónum evra, FIH í Danmörku kostaði einn milljarð evra og JP Nordiska litlar 100 milljónir evra. Samtals gera þessi kaup 4,9 milljarða evra, eða sem svarar 426 milljörðum króna. Að baki tölum Landsbankans liggja svo meðal annars kaup á Heritable Bank, Teather & Greenwood, Kepler Securities, Merrion Capital og Bridgewell. Að baki kostnaðar Glitnis má svo meðal annars finna KredittBanken, BN Bank, FactoNor, Norse Securities og Union Group í Noregi, norræna fjármálafyrirtækisins Fischer Partners og FIM Group. Kaupþing er sagt njóta þess í útrás sinni að hafa farið af stað í þann víking fyrstur íslenskra banka auk þess sem hann hafi einnig verið stórtækari í kaupum en hinir til þessa. Landsbankinn hefur kostað langminnstu til útrásarinnar til þessa en Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri bankans, segir ekki loku fyrir það skotið að bankinn muni gerast stórtækari í kaupum síðar meir. „Munurinn á starfseminni í dag og því sem áður var er ævintýralegur og við eðlilega betur í stakk búin að gera stærri hluti en áður," segir hann í úttekt í miðopnu Markaðarins. Þar kemur einnig fram að Glitnir nýtur mestrar sérstöðu í vali sínu á leið til vaxtar úti í hinum stóra heimi með svokallaðri syllumarkaðssetningu.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira