Þrjátíu og einum starfsmanni sagt upp hjá Ramma hf. 11. júlí 2007 18:30
Þrjátíu og einum starfsmanni Rækjuvinnslunnar Ramma hf á Siglufirði verður sagt upp á næstu vikum og verður vinnslan lögð niður í október. Forstjóri fyrirtækisins segir lausatök ríkisvaldsins á stjórn efnahagsmála og hávaxtastefnu Seðlabanka Íslands vera útflytjendum fjandsamleg. Starfsmönnum Rækjuvinnslunar Ramma hf var í dag tilkynnt að fyrirtækið hygðist leggja niður vinnsluna í lok október. Starfsfólkið fær send uppsagnarbréf fyrir mánaðarlok. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að tap á rekstri rækjuvinnslunnar hafi verið umtalsvert síðustu ár. Tapið hafi numið rúmlega 300 milljónum á undanförnum tveimur og hálfu ári. Helstu ástæður fyrir taprekstrinum séu hátt gengi íslensku krónunnar, hrun rækjuveiða við Ísland og erfið staða á fiskmörkuðum. Á sama tíma væri vaxandi rækjuveiði- og vinnsla í Kanada og Evrópusambandið hafi nú ákveðið að veita kanadískum rækjuframleiðendum verulegar tollaívilnanir frá því sem verið hefur. Ljóst sé að það muni veikja íslenska rækjuiðnaðinn enn frekar. Þá sendir félagið stjórnvöldum tóninn. Í yfirlýsingu félagsins segir: Lausatök ríkisvaldsinns við stjórn efnahagsmála samhliða mikilli uppbyggingu stóriðju og hávaxtastefna Seðlabanka Íslands eru, og hafa verið, útflutningsatvinnuvegunum fjandsamleg. Ólafur Helgi Marteinsson forstjóri Ramma hf. segist harma að þurfa grípa til þessara aðgerða en um ekkert annað sé að ræða. Hann segir Í ljósi þess að mikilll kvótaniðurskurðar á þorski sé framundan sé þeim ekki tækt að halda vinnslunni áfram vegna tekjutaps. Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um 130 þúsund tonna aflamark í þorski þýði að þorskkvóti Ramma hf. skerðist um tæp tvö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Skammt er síðan Rækjuvinnslan Miðfell á Ísafirði sagði upp fjörutíu starfsmönnum og stuttu síðar varð fyrirtækið gjaldþrota.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira