Innlent

Efling svæðisstöðva í skoðun

Stefán Eiríksson
Stefán Eiríksson

Hugmyndir um að efla svæðisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru nú til umræðu, að sögn Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra.

„Við erum nú í mjög nákvæmri skoðun á því hvernig við eigum að skipuleggja okkar starfsemi, meðal annars í samræmi við nýja löggæslu­áætlun. Þar kemur til greina að efla forvarna­starfið enn frekar. Þá horfum við til svæðisstöðvanna og þeirrar starfsemi sem þar fer fram. Í okkar huga eru forvarnir eitt af mikilvægustu verkefnum lögreglu, í samstarfi við alla þá sem að þeim koma. Áherslupunktar lögreglu eru á þremur sviðum, sýnileika, gæðum og skilvirkni rannsókna svo og forvörnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×