Innlent

Skútan rannsökuð á Keflavíkurflugvelli

Eitt stærsta fíkniefnamálið frá upphafi
Eitt stærsta fíkniefnamálið frá upphafi
Skútan sem ferjaði rúmlega 60 kílógrömm af fíkni­efnum frá Noregi til Fáskrúðs­fjarðar var flutt í flugskýli á Kefla­víkurflugvelli til nákvæmrar rann­sóknar á fimmtudagskvöld. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði rann­sóknina enn sem komið er ekki hafa leitt neitt nýtt í ljós.

Kafarar á vegum sérsveitar lögreglunnar skoðuðu skipið að utan og hafsbotninn í kring strax á fimmtudag, en fundu ekkert markvert.

Átta manns eru í haldi lögreglu í þremur löndum vegna málsins, en engar nýjar handtökur hafa átt sér stað. Enginn hefur verið leystur úr haldi, en yfirheyrslur eru stutt á veg komnar. Formleg skýrslutaka er ekki hafin að fullu sakir þess að einn verjenda í málinu er erlendis.

Stefán segir ekki tímabært að segja til um hvort framsals verði krafist á þeim þremur sem handteknir voru erlendis. Tveir voru handteknir í Færeyjum, annar þeirra Íslendingur, en hinn Dani.

Einn Íslendingur, Logi Freyr Einarsson, var handtekinn í Noregi, en hann er talinn vera einn skipuleggjenda smygltil­raunar­innar. Hinir eru bróðir hans Einar Jökull Einarsson og Bjarni Hrafn­kelsson, sem báðir voru handteknir á heimilum sínum á höfuð­borgar­svæðinu. Báðir hafa komið áður við sögu lögreglu. Einar Jökull hefur dvalið í Tékklandi og var eftir­lýstur af tékknesku lögreglunni eins og kom fram á vefsíðu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×