Innlent

Smyglarar ekki stressaðir að sjá

Skútunni var lagt rétt við frystihúsið.
Skútunni var lagt rétt við frystihúsið. Mynd/Sigurjón Hjálmarsson
„Þeir komu vel fyrir," segir starfsmaður frystihússins á Fáskrúðsfirði um skútumennina tvo sem handteknir voru þar í bænum á áttunda tímanum í gærmorgun.

Mennirnir úr skútunni spurðust fyrir um það hvort þeir væru ekki örugglega á Fáskrúðsfirði og fengu að hringja í frystihúsinu á sjötta tímanum um morguninn, að því er talið er í félaga þeirra sem kom akandi til bæjarins. „Þeir voru mjög kurteisir og almennilegir. Ekkert stressaðir að sjá," segir viðmælandinnn úr frystihúsinu sem ekki vill að nafn hans komi fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×