DHL-höllin er ekki höllin hans Justins Shouse 31. mars 2007 09:00 Frábær í síðasta leik Justin Shouse var með 21 stig og 11 stoðsendingar í sigurleiknum á KR í Stykkishólmi á þriðjudaginn. MYND/Anton
Körfubolti KR og Snæfell leika í dag þriðja leik sinn í undanúrslitaeinvígi sínu í Iceland Expressdeild karla. Staðan í einvíginu er jöfn eftir tvo nauma heimasigra og nú er svo komið að allir fjórir leikir liðanna í vetur hafa unnist með fjórum stigum eða minna. Sá síðasti vannst á þriggja stiga körfu Danans Martins Thuesen þremur sekúndum fyrir leikslok en það var fyrsti sigur Snæfellinga í innbyrðisleikjum liðanna á tímabilinu. Bandaríkjamaðurinn Justin Shouse átti frábæran leik í síðasta leik, skoraði 21 stig og gaf 11 stoðsendingar og það er ljóst að hann þarf að spila vel ætli Snæfellingar að eiga möguleika í DHL-Höllinni í dag. Vandamál Shouse er hins vegar að DHL-höllin er greinilega ekki uppáhaldsíþróttahús hans. Shouse hefur aðeins hitt úr 23% skota sinna (26/6) og 50% vítanna (10/5) í tveimur heimsóknum sínum í húsið og hann er að skora helmingi minna að meðaltali gegn KR í Vesturbænum (8,5 stig í leik) en hann hefur gert í leikjum liðanna í Hólminum (17,0). Skotnýting hans gegn KR er líka tvöfalt hærri bæði utan af velli (46,4%) og af vítalínunni (100%). Hvernig sem sóknarleikur Justins er gegn KR-ingum þá er ekki hægt annað en að hrósa honum fyrir varnarleikinn gegn Tyson Patterson. Justin hefur nefnilega haldið Tyson í 9,8 stigum að meðaltali í fjórum leikjum kappanna og þvingað hann til þess að klikka á 67% skota sinna. Tyson hefur enn fremur aðeins komist samtals fjórum sinnum á vítalínuna í öllum leikjunum og þá hefur hann tapað 4,8 boltum að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira