Lífið

Greiðslan fyrir Ronju ræningjadóttur

„Látlausar greiðslur hafa undanfarin ár verið áberandi hjá fermingarstúlkum og það er svoleiðis líka í ár,“ segir Sólveig Björg Arnarsdóttir, hársnyrtir hjá Rauðhettu og úlfinum.

 

Hún ákvað þó að breyta aðeins út af vananum og útbúa íburðarmikla greiðslu. „Ég myndi lýsa henni þannig að ef Ronja ræningjadóttir væri að fermast myndi hún klárlega vera með þessa greiðslu.“

 

Sólveig segir greiðsluna frjálslega en ekki of stífa eins og fermingargreiðslur séu oft á tíðum. „Ég ákvað að vera með liði en hafa þetta samt svolítið „messí“, ekki of stílhreint og rokka þetta svolítið upp.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×