Innlent

Bót fyrir fatlaða ferðamenn

Samgönguráðherra afhendir lyklana að fyrsta bílaleigubíl Hertz sem getur tekið við hjólastól.
Samgönguráðherra afhendir lyklana að fyrsta bílaleigubíl Hertz sem getur tekið við hjólastól. MYND/GVA

Fyrsti bílaleigubíllinn á Íslandi sem getur tekið hjólastól var afhentur í gær. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti lyklana að bílnum en fyrsti leigutakinn var danskur MND-sjúklingur, Evald Krog að nafni. Bíllinn er frá Hertz-bílaleigunni.

Það var Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, sem hvatti Hertz til þess að útbúa bílaleigubíl sem þennan.

„Það hefur verið vandamál fyrir okkur að geta ekki tekið bílaleigubíl eins og annað fólk og ég veit að ferðamenn hafa lent í vandræðum. Þessi bíll gerir það að verkum að sá sem er í hjólastól getur verið sinn eigin herra og ferðast um landið eins og aðrir,“ segir Guðjón.

Bíllinn er af gerðinni Toyota HiAce. Aftasti bekkurinn var tekinn úr, festingar útbúnar fyrir hjólastól og sett upp þriggja punkta bílbelti fyrir farþegann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×