Ánægja með lofthelgiseftirlit 24. janúar 2007 02:00 Lauri Allmann, ráðuneytisstjóri varnarmálaráðuneytis Eistlands, og Matti Maasikas, ráðuneytis-stjóri eistneska utanríkisráðuneytisins. MYND/GVA
Eistar eru hæstánægðir með reynsluna af aðildinni að Atlantshafsbandalaginu, ekki síst lofthelgiseftirlitinu sem NATO hefur séð þeim og hinum Eystrasaltsþjóðunum; Lettum og Litháum, fyrir frá því þjóðirnar þrjár gengu í bandalagið vorið 2004. Þetta segja ráðuneytisstjórar ráðuneyta varnarmála og utanríkis-mála í Eistlandi, þeir Lauri Allmann og Matti Maasikas, en þeir voru í hópi háttsettra eistneskra embættismanna sem voru í fræðsluferð hér á landi á vegum Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Allmann segir Eista ekki stefna að því að koma sér upp eigin flugher. „Bandalagsþjóðirnar í Evrópu ráða yfir yfrið nægum flugherafla og út frá heildarhagsmunum bandalagsins séð er það því skynsamlegast að við einbeitum okkur að því að byggja upp annars konar varnargetu sem getur komið bandalaginu til góða,“ segir hann. Eins og er skiptast flugherir NATO-ríkja á um það á hálfs árs fresti að leggja til þotur og áhafnir til að sinna lofthelgiseftirliti þar eystra, en ákveðið hefur verið að lengja frestinn í heilt ár. Samkvæmt núgildandi samningum á þetta kerfi að haldast að minnsta kosti fram til ársins 2018. Kostnaðurinn skiptist þannig að útgerðarríki þotnanna leggur til þoturnar og áhafnir þeirra, en gistiríkið annast alla þjónustu við þær á jörðu niðri. Þótt eistnesk stjórnvöld séu að auka útgjöld til varnarmála hröðum skrefum leggur Maasikas áherslu á að það standi ekki í neinu samhengi við þá staðreynd að með lofthelgiseftirlitinu þiggi Eistar dýra þjónustu af öðrum NATO-ríkjum. Bæði Allmann og Maasikas leggja áherslu á að lofthelgiseftirlitið fari fram á grundvelli þeirrar meginreglu að loftrými NATO sé eitt og óskipt. „Við styðjum þetta heilshugar, að sama grunnreglan eigi við um allt loftrými NATO,“ árétta þeir. Ísland er nú eina NATO-ríkið þar sem ekkert reglubundið lofthelgiseftirlit fer fram, umfram það eftirlit sem Ratsjárstofnun sinnir.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent Fleiri fréttir Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show Sjá meira