Fundu flöskuskeyti og uppfylltu sextíu ára gamalt áheit 28. nóvember 2006 06:30
Hjónin Pétur Jónsson og Svava Kristjánsdóttir, eigendur Árdals á Hvanneyri, færðu nýlega Hvanneyrarkirkju andvirði tveggja ákavítisflaska til að uppfylla sextíu ára gamalt áheit sem þau fundu í flösku undir súð í húsi sínu. Pétur og Svava fundu flöskuskeytið þegar verið var að gera upp íbúðarhús þeirra fyrir nokkru. Á miða í flöskunni höfðu fimm karlar ritað nafn sitt eigin hendi undir skilaboð þar sem heitið var á finnanda flöskunnar að gefa Hvanneyrarkirkju hundrað krónur. Húsráðendur lentu ekki í miklum vandræðum með að framreikna þá upphæð því utan á flöskunni var miði þar sem kom fram að hún hafði innihaldið ákavíti og að hún hefði kostað fimmtíu krónur. Það var svo þann 21. nóvember 2006, sextíu árum eftir að miðinn í flöskunni hafði verið skrifaður að Pétur og Svava færðu Ingibjörgu Jónasdóttur, sóknarnefndarmanni Hvanneyrarkirkju, andvirði tveggja ákavítisflaska, eða um átta þúsund krónur. Að sögn Ingibjargar er ekki vitað hverjir fimmenningarnir voru eða hvaða hlutverk þeir höfðu. Flöskuskeytið er hins vegar skrifað aftan á auða vinnuskýrslu frá Húsameistara ríkisins sem getur verið vísbending um að þeir hafi verið iðnaðarmenn eða verkamenn. Um þessar mundir stendur yfir viðgerð á innviðum hinnar hundrað ára gömlu Hvanneyrarkirkju þannig að fjárstuðningurinn kemur sér vel.
Innlent Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Komi vel til greina að segja sig úr ASÍ Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira