Skemmtiferðaskipin full af Þjóðverjum 1. júlí 2006 07:30 Skemmtiferðaskipið grand princess Algengir viðkomustaðir skemmtiferðaskipa á Íslandi eru Reykjavík, Akureyri, Grundarfjörður, Ísafjörður og Vestmannaeyjar.
Í sumar koma tæplega áttatíu skemmtiferðaskip að höfn í Reykjavík, en langflest þeirra skipa sem koma til landsins eiga viðkomu þar. Í fyrra komu um 55.000 manns með skemmtiferðaskipum til landsins og er búist við að talan verði enn hærri í ár. Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri hjá Faxaflóahöfn, segir flesta koma frá Þýskalandi, en í fyrra kom tæplega helmingur allra farþega þaðan. "Ég held að það sé vegna þess að þeir komast hvergi almennilega í sjó í heimalandinu, svo heillar norðrið þá líka mikið. Skipin heimsækja oft Bergen auk Íslands og sigla svo suður norsku strandlengjuna," segir Ágúst um mögulegar ástæður fyrir þessum mikla áhuga Þjóðverja á Íslandi. Algengt er að skemmtiferðaskipin heimsæki Akureyri, Ísafjörð, Grundarfjörð eða Vestmannaeyjar auk Reykjavíkur. Ekki geta þó allar hafnir tekið við öllum skipum vegna dýptar- og stærðartakmarkana. "Flestir sem koma að bryggju hérna í Reykjavík vilja vera á Hafnarbakkanum, sem næst miðbænum, en þar getum við bara tekið á móti ákveðið löngum skipum. Á fimmtudaginn vorum við að opna nýjan hafnarbakka í Sundahöfn sem nefnist Skarfabakki, þar getum við tekið á móti öllum þeim skipum sem koma í sumar." Star Princess er fjölmennasta skipið sem kemur til landsins í sumar, en það rúmar um 2.600 manns auk 1.200 manna áhafnar. Það kemur við hér á landi í september á leið sinni frá Evrópu til Ameríku, en farþegarnir eru flestir frá Bandaríkjunum. "Það er ekki óalgengt að það sé einn í áhöfn um hverja tvo farþega á svona lúxusskipum, enda eru þessar ferðir ekki ódýrar," segir Ágúst um áhafnarfjöldann. Dæmi eru um að vikuferð í svítu kosti upp undir milljón. Öryggi vegna skipakoma var stóraukið í júlí í fyrra þegar hertar reglur um eftirlit og gæslu við hafnir tóku gildi.
Innlent Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Sjá meira