Aðskilnaðarsinnar styðja ályktun um Quebec 25. nóvember 2006 11:30
Flokkkur aðskilnaðarsinna í Quebec í Kanada hefur samþykkt að styðja þingsályktun um að frönskumælandi íbúar Quebec séu þjóð í sameinuðu Kanada. Gagnrýnendur segja tillöguna af pólitískum toga og hún muni stuðla að sundrungu landsins, en hugmyndir um sjálfstæði hins frönskumælandi héraðs hafa komið upp áður og valdið miklum titringi. Gilles Duceppe, leiðtogi Bloc Quebecuois, segir að þingsályktunin, sem Stephen Harper forsætisráðherra lagði óvænt fram á miðvikudag, muni auðvelda aðskilnaðarsinnum að styðja kröfu um sjálfstæði Quebec í framtíðinni. "Það er alltaf betra, þegar við berjumst fyrir sjálfstæðu Quebec, að Kanada skuli viðurkenna það að íbúar Quebec séu þjóð," segir Duceppe. Duceppe ætlaði að leggja fram svipaða þingsályktunartillögu á miðvikudag, en tillaga hans gekk lengra að því leiti að ekki var í henni talað um sameinað Kanada. Duceppe er sagður hafa reiðst ákaflega þegar forsætisráðherrann varð fyrri til með sína tillögu. Allir helstu flokkar á kanadíska þinginu, sem standa gegn þvi að Quebec fái sjálfstæði, styðja tillögu Harpers. Um er að ræða ályktun sem ekki á að þurfa að leiða til breytinga á stjórnarskrá Kanada.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Sjá meira