Hætt við útgáfu á bók O.J. Simpson 20. nóvember 2006 21:18 Simpson í réttarhaldinu árið 1995. MYND/AP
Fyrirtækið News Corp. hefur hætt við útgáfu á bók O.J. Simpsons "If I did it", sem útleggst á hinu ylhýra sem "Ef ég hefði gert það" og fjallaði um hvernig hann hefði myrt fyrrum konu sína Nicole Brown Simpson og vin hennar Ron Goldman. Einnig hefur verið hætt við að sýna sjónvarpsviðtal við O.J. um bókina en það átti að sýna í næstu viku. Bókin hefur valdið miklum fjaðraþyt í Bandaríkjunum og fólk keppst við því að lýsa yfir hversu siðlaus hún sé og ekki síst það að gefa hana út. Varð ástandið svo slæmt að útgefandi bókarinnar sá sig tilneydda til þess að gefa út yfirlýsingu á fimmtudaginn var um hvers vegna hún ákvað að gefa bókina út. Útgefandinn sagði þar að Simpson hefði komið með hugmyndina að bókinni og að hann hefði víst fengið um þrjár og hálfa milljón dollara fyrir hana en það er nálægt 250 milljónum íslenskra króna. Simpson var sýknaður af morðunum en var síðan talinn bera ábyrgð á morðunum í annars konar málsókn sem var höfðuð gegn honum. Þurfti hann því að greiða fjölskyldunum tveim, Goldman og Brown bætur.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira