Mín dagskrá á menningarnótt 16. ágúst 2006 16:30 Nú geta allir sett saman sína eigin dagskrá á Menningarnótt.
Nýr dagskrárvefur menningarnætur hefur nú verið opnaður á slóðinni www.menningarnott.is. Vefnum er ætlað að bæta aðgengi að þeim viðburðum sem í boði eru á Menningarnótt og auðvelda fólki að setja saman sína eigin dagskrá til að taka með í miðborgina. Til að setja saman sína eigin dagskrá þarf einungis að haka við þá viðburði sem maður vill sjá og prentast þeir þá út ásamt staðsetningu viðburðanna á korti. Framsetning viðburða með þessum hætti er afrakstur þróunarvinnu sem Gagarín hefur unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og fleiri aðila. Hér er um tilraunaútgáfu að ræða. Ingibjörn Pétursson, mastersnemi við Viðskiptaháskólann í Árósum hafði umsjón með uppsetningu þessa vefsins fyrir hönd Gagarín en hann rannsakar mismunandi birtingarform rafrænna gagna í lokaverkefni sínu og notar vef menningarnætur í þeim tilgangi. Geir Borg hjá Gagarín og Hreinn Hreinsson hjá Reykjavíkurborg hafa unnið með Ingabirni að útfærslu vefsins, ásamt hönnuðum og forritum hjá Gagarín. Gagarín hannaði útlit og framsetningu vefsins og forritaði kerfislausn sem birtir upplýsingar um viðburðina með ólíkum hætti en fyrirtækið hefur verið að sérhæfa sig í birtingu upplýsinga í tíma og rúmi. Notandi getur valið að nálgast upplýsingar í flokkuðum viðburðalista, á tímaás og á korti. Kerfið birtir margvísleg gögn, s.s. texta, myndir, vídeo og staðsetningu á korti. Gögnin sem birtast á vefnum eru vistuð á sérstökum gagnagrunni sem starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur umsjón með.
Lífið Menning Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira