Evrópskar verðlaunamyndir á Menningarnótt 15. ágúst 2006 10:15 Sýningar á þremur verðlaunadansmyndum verða í 12 Tónum og og Tjarnarbíói á Menningarnótt um komandi helgi.
Þrjár evrópskar verðlaunadansmyndir sem vakið hafa verðskuldaða athygli langt út fyrir raðir dansáhugafólks, verða frumsýndar hér á landi á Menningarnótt í Reykjavík. Sýningarnar verða í Tjarnarbíói kl. 14.00 og 16.30 og í versluninni 12 tónum á Skólavörðustíg kl. 18.00 til 22.00 (Cost of Living og Zimmer). Myndirnar þrjár eru: LADIES AND GENTLEMAN OVER 65 eftir Lilo Mangelsdorff. (70 mín. Þýskaland, 2002) Danshöfundurinn og leikstjórinn Pina Bausch valdi dansara í eina danssýningu sína með harla óvenjulegum hætti þegar hún auglýsti í blöðunum eftir þátttakendum þar sem skilyrðið var að umsækjendur væru 65 ára eða eldri! Af þeim 150 sem sóttu um valdi hún 25 einstaklinga sem æfðu með henni í eitt ár og úr varð danssýning sem ferðaðist um víða veröld við frábærar undirtektir. Þetta er hrífandi mynd um dansinn í lífinu og lífið í þeim sem leyfa sér að dansa! COST OF LIVING eftir Lloyd Newson í samvinnu við DV8. (34 mín. Bretland, 2004) Myndir Lloyd Newson, hins margverðlaunaða stofnanda breska dansleikhúshópinn DV8, hafa stækkað áhorfendahóp dansmyndarinnar svo um munar, enda meðal þeirra meistaraverk eins og "Enter Achilles" og "Strange Fish". Þessi nýjasta mynd hans, sem sigraði á Dance and Camera hátíðinni í New York 2005, er enginn eftirbátur hinna og hefur slegið í gegn á kvikmyndahátíðum um allan heim. Hún gerist í bresku sjávarþorpi en stærstu danshlutverkin eru byggð á kjaftforum rudda og fótalausum vini hans í leit að tilgangi og ást í lífinu. En fyrst og fremst fjallar myndin þó um vináttuna í sinni fegurstu mynd. ZIMMER eftir Helenu Jónsdóttur. (8 mín. Ísland, 2003) Þessi mynd var valin til framleiðslu í alþjóðlegu forvali fyrir Deutscher Videotanzpreis 2003 og sigraði síðan í aðalkeppninni í janúar 2004. Í sigrinum fólst ómetanleg viðurkenning fyrir íslenska dansmyndagerð þar sem keppnin er talin mikilvægasta dansmyndakeppni sem haldin er í Evrópu um þessar mundir. Það er löngu tímabært að kynna myndina íslenskum áhorfendum, en hún fjallar um mann sem hefur einangrast yfir sjónvarpinu í íbúð sinni og nánast vaxið saman við þann heim sem þar er að finna. Hér er nöturlegur veruleiki túlkaður af óvenjulegu næmi í fallegri samvinnu Helenu við Ólaf Darra Ólafsson leikara. Þessar þrjár myndir eiga það sameiginlegt að efni þeirra á erindi við okkur öll, en gjörólíkar útfærsluleiðir höfundanna opna okkur jafnframt innsýn í þá grósku sem er í evrópskri dansmyndagerð um þessar mundir. Sýningarnar verða eins og áður segir í Tjarnarbíói kl. 14.00 og 16.30 (allar þrjár) og hins vegar í versluninni 12 tónum á Skólavörðustíg milli kl. 18.00 og 22.00 Sýning myndanna þriggja hér á landi er á vegum Dance Film Association í New York, en Deirdre Towers listrænn stjórnandi samtakanna er stödd hér á landi af þessu tilefni.
Lífið Menning Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira