Sport

Stjarnan lagði KA fyrir norðan

Stjarnan vann í kvöld nauman sigur á KA 26-25 fyrir norðan í DHL-deildinni í handknattleik karla, eftir að hafa verið yfir 15-12 í hálfleik. Stórskyttan Tite Kalandadze var markahæstur í liði Garðbæinga með 7 mörk, en Jónatan Magnússon skoraði 9 mörk fyrir norðanmenn. Stjarnan er í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig, en KA í því sjötta með 19. stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×