Viðskipti innlent

Erlend fjárfesting aldrei meiri

glitnir banki Greiningardeild Glitnis hefur eftir skýrslu OECD að beinar fjárfestingar hér hafi aukist um 296 prósent á milli áranna 2004 og 2005.
glitnir banki Greiningardeild Glitnis hefur eftir skýrslu OECD að beinar fjárfestingar hér hafi aukist um 296 prósent á milli áranna 2004 og 2005. MYND/Heiða

Beinar fjárfestingar erlendra aðila hér á landi námu 153 milljörðum króna í fyrra og jukust um 296 prósent frá árinu á undan. Um met er að ræða.

Að sögn greiningardeildar Glitnis er þetta margfalt meiri vöxtur í erlendri fjárfestingu en mældist í sama tíma í OECD löndunum.

Vöxtur erlendra fjárfestinga í öðrum löndum var engu að síður sögulegur en hann nam 46.800 milljörðum króna á síðasta ári sem er 27 prósenta aukning á milli ára.

Beinar fjárfestingar erlendra aðila voru mestar í Bretlandi á síðasta ári miðað við önnur OECD-lönd. Þær námu rúmum 12.400 milljörðum íslenskra króna og tengjast fjárhagslegri endurskipulagningu alþjóðra fyrirtækja á borð við Shell þar í landi auk þess sem hlutur skrifast á reikning milliríkjasameininga og -yfirtöku á fyrirtækjum, að sögn greiningardeildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×