Viðskipti innlent

Spá yfir 23 milljarða hagnaði

spá vísitölunni í 6500 stigum í lok árs Annar ársfjórðungur lítur ágætlega út fyrir fyrirtæki í Kauphöll að mati KB banka.
spá vísitölunni í 6500 stigum í lok árs Annar ársfjórðungur lítur ágætlega út fyrir fyrirtæki í Kauphöll að mati KB banka.

Greiningardeild KB banka gerir ráð fyrir að þeirra hagnaður sextán félaga, sem hún spáir fyrir, verði um 23,5 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi.

Er reiknað með að hagnaður fjármálafyrirtækja dragist saman um þriðjung frá sama tímabili í fyrra vegna tapreksturs Straums-Burðaráss og TM.

Af einstökum félögum hagnast Glitnir mest á öðrum ársfjórðungi eða um 8,1 milljarð króna en Landsbankinn fylgir fast á hæla hans með um 7,4 milljarða. Bankinn spáir ekki fyrir eigin afkomu.

Hagnaður Avions Group er áætlaður 5,9 miljarðar og þá er búist við að hagnaður Actavis og Bakkavarar fari vel yfir tvo milljarða króna.

Fyrir árið í heild reiknar KB banki með að heildarhagnaður þeirra félaga, sem hann hefur til skoðunar, verði 134 milljarðar króna.

Í afkomuspánni kemur fram sá spádómur að Úrvalsvísitalan muni enda í 6.500 stigum í árslok sem er fimm hundruð stigum minni en fyrri spá hljóðaði upp á. Gangi þetta eftir hækkar vísitalan um 21,6 prósent frá síðasta gildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×