Ungliði gengst við tölvunjósnum 5. september 2006 06:00 Lars Leijonborg Formaður Þjóðarflokksins sænska segist miður sín yfir atvikinu. MYND/nordicphotos/afp
Ungliði úr Þjóðarflokknum sænska, öðrum stærsta stjórnarandstöðuflokknum, gaf sig í gær fram og viðurkenndi að hafa notað stolið lykilorð til að brjótast inn á innri vef sænska Jafnaðarmannaflokksins. Talsmenn Þjóðarflokksins sögðu unga manninn hafa verið rekinn umsvifalaust og fullyrtu að upplýsingarnar sem hann hefði aflað sér með þessu móti hefðu ekki verið notaðar í kosningabaráttunni. Tólf dagar eru nú til þingkosninga í landinu og fylgi fylkinganna tveggja mælist nær hnífjafnt. Málið kom upp eftir að fulltrúar Jafnaðarmannaflokksins lögðu inn kæru hjá lögreglu vegna meints innbrots í tölvukerfi þeirra, þar sem lesa mátti ýmsar trúnaðarupplýsingar um skipulag kosningabaráttu flokksins. Þetta er í annað sinn á árinu sem tölvuþrjótar varpa skugga á sænsku kosningabaráttuna. Í febrúar viðurkenndi ungur starfsmaður Jafnaðarmannaflokksins að vera upphafsmaðurinn að nafnlausum tölvupóstskeytum með rógi um Fredrik Reinfeldt, leiðtoga Hægriflokksins og forsætisráðherraefni kosningabandalags borgaralegu flokkanna.
Erlent Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira