Smith gæti orðið klár í slaginn fljótlega 26. júlí 2006 19:38 Fótbrot Smith í leiknum gegn Liverpool í vor var sannarlega ekki áhorfsefni fyrir viðkvæma NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, útilokar ekki að framherjinn Alan Smith gæti jafnvel verið orðinn klár í slaginn í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni, sem er útileikur gegn Fulham þann 20. ágúst. Smith tvífótbrotnaði í bikarleik gegn Liverpool í vor og var talið að hann yrði mjög lengi frá eftir þessi alvarlegu meiðsli. "Það kæmi mér satt best að segja ekki mikið á óvart ef Smith yrði orðinn klár þegar leikur hefst í næsta mánuði, því hann hefur sýnt ótrúlega skapfestu og vilja í meiðslum sínum. Fjöldi leikmanna hefði dottið niður andlega og misst sig í svekkelsi eftir svona áfall, en Smith er mjög sérstakur persónuleiki og því kemur það mér í raun ekki mikið á óvart að hann skuli vera kominn á góðan bataveg," sagði Ferguson og bætti við að Smith hefði staðið sig mjög vel á æfingum. Ferguson hefur auk þess gefið það til kynna að hann ætli að tefla Smith fram sem sóknarmanni í vetur eftir að hafa gert tilraun með að láta hann leysa stöðu varnartengiliðs á síðustu leiktíð. Smith hefur allan sinn feril spilað sem sóknarmaður og braust fram á sjónarsviðið þegar hann lék með Leeds United.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira