Sitja sem fastast í ræðustól 30. júní 2006 03:45 Hindra störf þingsins Þingmenn Flokks héraðanna hafa gripið til eigin úrræða til þess að koma í veg fyrir að appelsínugulu flokkarnir myndi nýja ríkisstjórn.
Þingmenn stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Úkraínu hafa undanfarna daga hindrað störf þingsins með því að sitja sem fastast um ræðustól þingsins, stól þingforsetans og stóla sem ætlaðir eru ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Þannig hefur þeim tekist að koma í veg fyrir að Júlía Timosjenkó geti tekið á ný við embætti forsætisráðherra. Þingið hefur ekki getað greitt atkvæði um skipun hennar í embættið, og þingið hefur heldur ekki getað greitt atkvæði um hver verður næsti þingforseti. "Trúið mér, ég hef oft tekið þátt í aðgerðum af þessu tagi, þeir geta ekki setið þarna til eilífðar," sagði Petro Porosjenkó, sem verður næsti þingforseti fái þingmeirihlutinn sínu framgengt áður en yfir lýkur. Núverandi þingmeirihluti hefur sjálfur beitt þessari aðferð, að sitja um stóla æðstu embættismanna þingsins, þegar stjórnarflokkarnir þrír voru í stjórnarandstöðu gegn þáverandi forseta landsins, Leoníd Kútsjma. Samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu hefur þingið fjórar vikur til þess að greiða atkvæði um nýja ríkisstjórn. Kosið var til þings í mars en það var ekki fyrr en í síðustu viku sem þrír flokkar, sem voru samherjar í appelsínugulu byltingunni svonefndu, náðu samkomulagi um stjórnarmyndun.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira