Heimsmet í notkun barnageðlyfs 2. maí 2005 00:01
Notkun geðlyfja við athyglisbresti og ofvirkni barna og unglinga hefur aukist um 76 prósent frá árinu 2002 og enn meira frá árinu 1999. Kostnaður Tryggingastofnunar ríkisins vegna þessarar tegundar lyfja hefur á sama tíma fimm- til sexfaldast. Hann nam um 23 milljónum króna árið 2002 en nærri 130 milljónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur, Samfylkingunni, en hún spyr hvort eðlilegt geti talist að á annað þúsund barna taki slík lyf að staðaldri. Horft er til virka efnisins methylphenidat, sem þekktara er undir heitinu Ritalin. Ávanahætta fyrir börn er ekki talin mikil, en engu að síður er ráðið frá því að ávísa lyfinu til fíkla. Samkvæmt gögnum Eftirlitsstofnunar Sameinuðu þjóðanna var notkun lyfsins hvergi meiri en á Íslandi árið 2003. Næstmest var notkunin í Bandaríkjunum en þar í landi hafa áhyggjur af hugsanlegri ofgreiningu á athyglisbresti vaknað. Í svari heilbrigðisráðherra segir jafnframt að ofvirkni og athyglisbrestur sé greindur út frá hegðun barnanna og það séu fyrst og fremst barnalæknar með sérfræðiréttindi sem hefji lyfjameðferð. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjur fyrirspyrjanda og ætlar að leita til landlæknis og Miðstöðvar heilsuverndar barna um það hvernig bregðast skuli við. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir að að minnsta kosti tvö prósent barna séu greind með athyglisbrest og ofvirkni og bendir á að sé rétt að málum staðið geti lyfjameðferð gert gagn í allt að þremur tilvikum af fjórum. "Það er hins vegar einnig rétt að greining þessa sjúkdóms er háður frásögnum og það getur stundum orðið til þess að börnin eru meðhöndluð þegar rót vandans er hugsanlega hjá foreldrunum." Sigurður segir vísbendingar um að ekki sé um frekari aukningu að ræða í notkun geðlyfsins.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Innlent Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Innlent Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent „Við gerum ekki svona við börn“ Innlent Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Fleiri fréttir Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Mannréttindadómstóllinn blandar sér í Vatnsendamálið „Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Óljóst hvers vegna ferðamanni var haldið í gíslingu Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Sindri og Védís Hervör til Kópavogsbæjar Bókhaldstækni og aukin skattheimta skýri afganginn Tæplega tíu milljarða viðsnúningur Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Stuðningsmenn Oscars mótmæltu og Kári Stefáns hættur Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar „Við gerum ekki svona við börn“ Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Myndaveisla: Lúðrasveit, fánar og gríðarstór stytta á Verkalýðsdaginn Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Fulllestað og veikt flutningskerfi raforku Þekkir ofbeldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks Íslenskum framleiðendum gerðir afarkostir og kröfugöngur verkalýðsins Sjá meira