Ekkert gengur hjá Liverpool 30. apríl 2005 00:01
Það á ekki af Liverpool að ganga í ensku úrvalsdeildinni og í gær kastaði liðið svo gott sem frá sér möguleikanum á fjórða sæti deildarinnar með því að ná aðeins jafntefli gegn Middlesbrough á heimavelli, 1-1. Liverpool byrjaði leikinn skelfilega og á 4. mínútu skoraði Szilard Nemeth eftir hörmulegan varnarleik frá Mauricio Pellegrino, sem heldur Sami Hyypiä út úr liðinu þrátt fyrir skelfilega frammistöðu hverja vikuna á eftir annarri. Liðið tók sig á í síðari hálfleik og uppskar eitt af mörkum ársins þegar Steven Gerrard þandi netið en þegar yfir lauk höfðu leikmenn Liverpool ekki náð að finna fleiri glufur á sterkri vörn gestanna. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var öskureiður í leikslok. „Við spiluðum af eðlilegri getu í 20 mínútur í síðari hálfleik. Annars var þetta skítabolti allan leikinn og við að eyða tíma með því að tefja, gefa aukaspyrnur og ná okkur í spjöld. Þetta var ömurlegt,“ sagði Benitez eftir leikinn en hann þarf að rífa sína menn upp úr öldudalnum og það fljótt, því á þriðjudag fer fram síðari leikurinn gegn Chelsea í Meistaradeildinni. „Ég get lofað því að þar verður allt önnur frammistaða á boðstólum. Við erum alltaf svona lélegir í deildinni eftir að hafa keppt í Meistaradeildinni vikuna áður og það er nokkuð sem verður að breytast í framtíðinni,“ bætti Benitez við. Þó að Chelsea hafi tryggt sér sjálfan meistaratitilinn er enn með öllu óljóst hvað lið munu falla en Southampton komst upp úr fallsæti með frábærum sigri á Norwich í spennuþrungnum leik. Harry Redknapp, stjóri Southampton, tók áhættu undir lokin með því að setja framherjann Henri Camara inn á og átti það eftir að borga sig – Senegalinn skoraði sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok og gaf Dýrðlingunum þrjú dýrmæt stig sem gætu farið langt með að bjarga liðinu frá falli, enn eitt árið. „Þetta var spurning um heppni en ekki klæki,“ sagði Redknapp eftir leikinn. „Staðan var jöfn og við þurftum að sigra. Hvað átti ég að gera annað? Auðvitað set ég annan framherja inn á til að reyna að vinna leikinn. Og það heppnaðist.“
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Davíð Snær og Guðlaugur Victor lögðu upp mörk „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Leclerc óvænt á ráspól í Ungverjalandi Ledecky lenti í vandræðum en hélt krúnunni Arnór og Ísak skoruðu í stórfurðulegum tíu marka leik Settu Íslandsmet í síðasta sundinu á HM í Singapúr Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Sjá meira