Afgerandi sigur Mubaraks 9. september 2005 00:01
Hozni Mubarak, núverandi forseti Egyptalands, vann afgerandi sigur í kosningunum í Egyptalandi, fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu landsins. Þegar búið er að telja um helming atkvæða hefur Mubarak hlotið áttatíu prósent atkvæða og þar með tryggt sér fimmta kjörtímabilið á forsetastóli. Andstæðingar hans og kosningaeftirlitsmenn segja að kosningarnar hafi verið óheiðarlegar, að starfsmenn kjörstjórna hafi ítrekað reynt að hafa áhrif á kjósendur auk þess sem ýmiskonar óregla einkennir upplýsingar og framkvæmd. Kosningaeftirlitsmenn segja þetta þó ekki breyta niðurstöðunum þar sem þær séu svo afgerandi. Kjörsókn liggur ekki enn fyrir en allt bendir til að hún hafi verið mjög dræm, eða á milli fimm og tuttugu prósent eftir landshlutum. Kjörsókn í forsetakosningum í Egyptalandi hefur raunar alltaf verið sögð mjög lítil en talið var hugsanlegt að það breyttist í þetta skipti. Ástæðan er sú að áður fyrr valdi egypska þingið einn frambjóðanda og kjósendur gátu bara veitt honum stuðning eða hafnað. Í kjölfar þrýsting innan lands og utan ákvað Mubarak að breyta reglunum í þetta sinn og leyfa öðrum að sækjast eftir embættinu. Talið var öruggt að þetta breytti engu, í það minnsta ekki í þetta sinn þar sem flestir Egyptar þekkja ekkert annað en að Mubarak sé forseti og aðrir frambjóðendur voru næsta óþekktir.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira