Sport

Chelsea tapaði fyrstu stigum sínum

James Beattie skoraði annað mark Everton á leiktíðinni úr vítaspyrnu gegn Chelsea í dag
James Beattie skoraði annað mark Everton á leiktíðinni úr vítaspyrnu gegn Chelsea í dag Nordic Photos GettyImages
Topplið Chelsea tapaði fyrstu stigum sínum í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð í dag, þegar liðið varð að sætta sig við jafntefli á útivelli gegn Everton. James Beattie skoraði mark Everton úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en Frank Lampard jafnaði metin í þeim síðari. Eiður Smári kom inná sem varamaður á 57. mínútu leiksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×