Ekki sama, jólagjöf eða brúðargjöf 13. janúar 2005 00:01
Tólf ára stúlka fær ekki jólagjöf frá föður sínum nema greiða tollinum fjórtán þúsund krónur. Hún hefði hins vegar fengið gjöfina án afskipta tollsins ef hann hefði sent hana sem brúðkaupsgjöf. Pabbi Elísabetar Hönnu Dainelsdóttur er bandarískur. Hann sendi henni I-pod í jólagjöf fyrir jólin. Tollurinn fór hins vegar fram á að stúlkan og móðir hennar greiddu 14 þúsund króna toll af jólagjöfinni. Samkvæmt lögum eru gjafir undanþegnar tollum en þær mega ekki kosta hvað sem er. Sigurður Skúli Bergsson, forstöðumaður tollgæslusviðs hjá Tollstjóranum í Reykjavík, segir að ef vara kosti ekki meira en sjö þúsund krónur séu ekki lagðir á hana tollar. Fari hún upp fyrir þá upphæð greiði fólk toll af því sem umfram er. Elísabet og móðir hennar vildu ekki sætta sig við þetta. Elísabet segir að þær hafi sent gjöfina til baka þar sem þær hafi annars þurft að borga 14 þúsund krónur. Hún vilji ekki kaupa jólagjöfina sína. Elísabet er eðlilega leið yfir því að þurfa að sjá á bak gjöfinni aftur til Bandaríkjanna. Hún hafi hlakka til að fá hana síðan á jólunum en ekkert sé hægt að gera við þessu. Það kaldhæðnislega er hins vegar að samkvæmt lagabókstafnum hefði Elísabet ekki þurft að greiða neina tolla af gjöfinni ef þetta hefði verið brúðkaupsgjöf. Sigurður Skúli segir ekki miðað við ákveðna fjárhæð í þeim efnum heldur hvað teljist hæfilegt. Hann þekki ekki nákvæmlega sjónarmiðin sem liggi að baki reglunum en væntanlega gifti menn sig ekki eins oft og þeir eigi afmæli. Tollurinn leyfði Elísabetu að eiga einn hlut úr jólapakka pabba síns og það var jólakortið.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Fleiri fréttir „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Sjá meira