Íhuga að sanna mál sitt fyrir dómi 13. janúar 2005 00:01
Verkefnastjóri Impregilo vísar á bug öllum ásökunum Alþýðusambands Íslands um brot á íslenskri vinnu- og skattalöggjöf. Hann segist nú íhuga dómsmál til að færa sönnur á mál sitt. Félagsmálaráðherra reynir þessa dagana að mynda sér skoðun á málinu en það er orð gegn orði í málflutningi forkólfa ASÍ og lmpregilo. Líkja má atburðarásinni í málefnum Impregilo þessa dagana við vígbúnaðarkapphlaup stríðandi fylkinga. Forkólfar fyrirtækisins áttu fund með félagsmálaráðherra í dag og ráðherra hefur einnig undir höndum greinargerð frá ASÍ þar sem settar eru fram ávirðingar og ásakanir um að Impregilo sniðgangi íslensk lög og reglur. Hvorugur aðilinn gefur þumlung eftir. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að málin skýrist smám saman og að honum finnist mikilvægt að fara yfir það frá öllum hliðum. Hann hafi hitt forystumenn ASÍ, forsvarsmenn Impregilo og einnig forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins. Farið sé yfir greinargerð ASÍ og nokkur tími tekinn til þess. En hvort sem um er að ræða ásakanir ASÍ um skattsvik Impregilo eða brot á íslenskri vinnulöggjöf þá eiga þær enga stoð í raunveruleikanum að mati Gianni Porta, verkefnastjóra Impregilo. Hann segir að fyrirtækið sé reiðubúið að sanna það fyrir yfirvöldum og fyrir dómstólum sem fyrirtækið sé að hugsa um að leita til. Fyrirtækið geti sannað að allar aðdróttanir í þess garð séu tilbúningur. Að loknum fundi með ráðherra lá leið Impregilo-manna niður á næstu hæð Hafnarhússins þar sem þeir áttu fund með forstjóra Vinnumálastofnunar. Fyrirtækið hefur sótt um atvinnuleyfi fyrir 200 kínverska verkamenn. Ástæðuna segir verkefnastjóri Impregilo vera þá að Kínverjarnir hafi reynslu af virkjanagerð og hafi unnið við verkefni í Mongólíu fyrir Impregilo. Því þurfi ekki að óttast að þeir fari úr vinnu líkt og Portúgalar sem ekki geta fellt sig við íslenskt veðurfar. Þeir séu auk þess hörkuduglegir og þægilegir í umgengni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að sá dráttur sem orðið hafi á afgreiðslu leyfanna sé tilkominn vegna þess að honum hafi borist upplýsingar um að Impregilo hafi ekki svarað starfsumsóknum Íslendinga og annarra Evrópubúa. Porta segir það alrangt, fyrirtækið ráði þá starfsmenn sem teljist hæfir. Þetta sé enn ein aðdróttunin. Fólki sé svarað en ef það sé að sækja um vinnu við fiskvinnslu eða landbúnað geti Impregilo að sjálfsögðu ekki ráðið það á virkjanasvæðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira