Engin röskun á framkvæmdum 13. janúar 2005 00:01
Engin röskun verður á framkvæmdum við álverið í Reyðarfirði þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Fjarðaál verði að gangast undir umhverfismat. Fyrirtækið hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar og þangað til hann fellir úrskurð hefur það sömu réttarstöðu og fyrir úrskurð héraðsdóms. Forsendur dómsins voru meðal annars þær að álverið sem hafði áður gengist undir umhverfismat var með annan mengunarbúnað og því þyrfti Fjarðaál að gangast undir annað. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Fjarðaráls, segir að þessi niðurstaða komi sér á óvart. "Í grundvallaratriðum er um að ræða minna álver sem er ekki með rafskautaverksmiðju, en það er einn mest mengandi þáttur í rekstri álvera. Við erum með þurrhreinsunarbúnað og þau markmið sem við og starfsleyfið setur okkur eru það ströng að heildaráhrifin af verksmiðjunni eiga að vera minni eða þau sömu og ef um vothreinsunarbúnað væri að ræða." "Þetta er jákvæður úrskurður og við eigum mikið að þakka þrautseigju og elju Hjörleifs Guttormssonar að fara með þetta mál fyrir dómstóla," segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Árni hefur fyrirvara á að Hæstiréttur á eftir að fjalla um málið en segir þó dóminn vera viðurkenningu á málstað náttúrverndarsinna og staðfesta að umhverfisráðherra hafi farið offari á sínum tíma við afgreiðslu málsins. Siv Friðleifsdóttir var umhverfisráðherra í apríl 2003 og felldi þann úrskurð að álverið í Reyðarfirði þyrfti ekki að gangast undir annað umhverfismat þar sem slíkt mat hefði áður farið fram vegna álvers Norsk-Hydro sem aldrei reis. Hún telur ekki að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur sé áfellisdómur yfir ákvörðun hennar og er hissa á niðurstöðunni. "Það hafði áður farið fram umfangsmikið umhverfismat fyrir mun stærra álver og þrátt fyrir öðruvísi mengunarbúnað nýja álversins töldu Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun ekki þörf á nýju mati og ég var sammála því."
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira