Segir niðurstöðu koma mjög á óvart 13. janúar 2005 00:01
Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, segir niðurstöðu héraðsdóms vegna álvers Alcoa í Reyðarfirði koma verulega á óvart. Hún vonar að kærufletir vegna álversins fari að verða uppurnir. Samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá í gær verður álver Alcoa í Reyðarfirði að fara í umhverfismat og getur ekki stuðst við fyrra mat vegna álsvers sem Norsk Hydro hugðist reisa á svæðinu. Héraðsdómur ómerkti því úrskurð umhverfisráðherra um ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrra umhverfismatið gilti einnig fyrir Alcoa. Það var Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, sem stefndi Alcoa, Reyðaráli og íslenska ríkinu vegna fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði og krafðist meðal annars ómerkingar á úrskurði ráðherra. Héraðsdómur féllst á kröfuna þar sem ljóst þótti að mengun myndi margfaldast miðað við fyrri áætlanir. Dómurinn benti á að álver væru, lögum samkvæmt, fortakslaust matsskyld og því væri úrskurður umhverfisráðherra andstæður lögum. Siv Friðleifsdóttir var umhverfsiráðherra þegar úrskurðað var um ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna álvers Alcoa. Hún segir dóminn koma sér verulega á óvart en honum verði áfrýjað til Hæstaréttar og ómögulegt sé að segja hvernig málið endi. Hún segir að fram hafi farið umfangsmikið umhverfismat á mun stærra álveri og rafskautaverksmiðju og þegar ákveðið hafi verið að minnka álverið verulega hafi Skipulagsstofnun komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf á nýju mati. Stofnunin hafi byggt það á áliti frá Umhverfisstofnun og Siv segist hafa verið sammála báðum stofnunum og því úrskurðað á fyrrgreindan veg. Siv segir að bæði Hjörlefiur Guttormsson og fleiri aðilar hafi oft kært álverið og Kárahnjúkavirkjun og hafi verið miklir andstæðingar þessara verkefna. Vonandi fari allir kærufletir að verða uppurnir.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira