Mjólk tvöfalt dýrari en í Danmörku 13. janúar 2005 00:01
Nýmjólk er orðin tvöfalt dýrari hér á landi en í Danmörku, en lágt verð í Danmörku er rakið til eðlilegrar samkeppni þar í landi. Verð á helstu neysluvörum hér á landi er það fjórða hæsta í 30 Evrópulöndum sem norska hagstofan kannaði. Algengt verð hér er rúmlega 80 krónur fyrir lítrann, en rúmlega 40 krónur í Danmörku. Jyllands-Posten greinir frá því að samkeppni stóru verslanakeðjanna hafi haft áhrif til lækkunar á mjólkurverði en til þess að það sé hægt þurfa mjólkurstöðvar og bændur líka að taka þátt í samkeppninni. Engin samkeppni er hins vegar á milli bænda og mjókurstöðva hér á landi, eitt heildsöluverð er á öllu frá þeim og ræður Mjólkursamsalan í Reykjavík yfir yfirgnæfandi meirihluta markaðarins. Þá er á það að líta að laun á öllum stigum mjólkurframleiðslu eru síst lægri í Danmörku en hér á landi. Ekki verður hárri álagningu íslenskra kaupmanna heldur kennt um því álagningin hér er það lág, að sögn kaupmanna, að þeir hafa sáralítið svigrúm til verðsamkeppni nema að fara að greiða með hverjum seldum mjólkurlítra. Þetta á sjálfsagt sinn þátt í því að verð á helstu neysluvörum hér á landi er það fjórða hæsta í þeim 30 Evrópuríkjum sem norska hagstofan kannaði og birt var í morgun. Þar eru Frakkland, Holland og Bretland í meðallagi, sem miðast við 100. Verðið er hins vegar hæst í Noregi og Sviss, 139, næst í Danmörku, 133, og Ísland er í fjórða sæti með 128. Rúmenskar nauðsynjavörur eru langódýrastar og hafa stuðulinn 33. Nauðsynjavörur á Íslandi eru því um það bil fjórum sinnum dýrari en þar en rétt er að taka fram að laun á Íslandi eru mun hærri en þar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira