Erlent

Algert stjórnleysi í New Orleans

Miklar sprengingar heyrðust í New Orleans um hálftíuleytið í morgun. Ekki er enn vitað um skemmdir eða manntjón. Algert stjórnleysi ríkir nú í borginni, þar sem vopnuð glæpagengi fara um og myrða, nauðga og stela. Von er á Bush Bandaríkjaforseta í heimsókn til borgarinnar í dag. Nú eru fimm dagar liðnir síðan fellibylurinn Katrín skall á suðurströnd Bandaríkjanna og rústaði öllu sem fyrir varð með gríðarlegum eyðileggingarmætti. Enn bíða þúsundir eftir að komast á brott af hamfarasvæðunum, flestir án vatns, matar, rafmagns eða nokkurra nauðþurfta. Ástandið í New Orleans er hrikalegt þar sem glæpamenn hafa nýtt sér ástandið og rænt og ruplað og ekki hikað við að myrða þá sem reyna að stöðva þá. Lögreglumenn hafa borið að meira að segja inni í Superdome-höllinni, þar sem tugþúsundir leituðu skjóls, hafi fólk verið myrt og konum nauðgað. Þjóðvarðliðar streyma á svæðið í þúsundatali, en það gerir starfið ekki auðveldara að fjölmargir lögreglumenn hafa lagt niður störf. Flestir voru þeir búsettir í borginni og eru þegar búnir að missa allt sitt og vilja ekki hætta lífinu líka. Sjúkrahúsin eru rafmagns- og lyfjalaus og segir starfsfólkið að þeir veikustu séu látnir deyja drottni sínum. Starfsfólkið sem er til staðar hefur grátbeðið um að sjúklingarnir verði fluttir en ekkert hefur gerst enn. Hefur yfirlæknir opinbera Charity-sjúkrahússins gagnrýnt að flestir sjúklingar einkaspítalans í nágrenninu séu þegar komnir í öruggt skjól á meðan hann þurfi að horfa upp á fólk deyja úr ofþornun, hungri og vosbúð. Fjölmargir íbúar híma enn á húsþökum, aðframkomnir af hungri og þorsta og vonast eftir björgunarþyrlu. Sumir hafa fetað í fótspor ræningjanna og reynt að ná sér í mat í þeim búðum þar sem eitthvað er eftir. Birgðir eru á þrotum í björgunarmiðstöðvunum og lík liggja eins og hráviði um alla borg. George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að heimsækja hamfarasvæðin í dag og sjá afleiðingar fellibylsins með eigin augum. Þingið hefur samþykkt að leggja fram tæpa 700 milljarða króna í björgunar- og uppbyggingarstarf og lögð er áhersla á að koma sem flestum laganna vörðum á stðainn til að ná tökum á ástandinu. Glæpamenn hindra björgunarstörf og er jafnvel talið að þeir hafi reynt að skjóta niður björgunarþyrlu. Ríkisstjórinn Katherine Blanco hefur sagt að þjóðvarðliðarnir hafi leyfi til að drepa og glæpamönnum verði engin miskunn sýnd. Reiði ríkir í garð stjórnvalda yfir því hversu hæg viðbrögðin hafa verið og segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mörg dauðsföll og gripdeildirnar ef þau hefðu verið skjótari. Í borgunum Biloxa og Gulfport í Mississippi ríkir útgöngubann til að reyna að koma í veg fyrir að ástandið verði eins og í New Orleans. Hamfarasvæðin ná samtals yfir um 230.000 ferkílómetra. Það er meira en tvöfalt flatarmál Íslands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×