Erlent

Banað vegna nefndarsetu

Mijbil Issa, einn fulltrúi súnnía í stjórnarskrárnefnd Íraks, var skotinn til bana ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum í Bagdad í gær. Súnníar hafa verið í hópi þeirra sem hvað harðast hafa barist gegn hernámsliðinu og ríkisstjórninni enda eru þeir mjög óánægðir með sinn hag. Þeim voru tryggð nokkur áhrif í stjórnarskrárnefndinni en greinilegt er að öfgamenn vilja auka enn frekar á óánægju súnníanna með því að hræða þá frá þátttöku í stjórnmálum. Fjöldi manns lést í hryðjuverkaárásum í Írak í gær, meðal annars voru 13 verkamenn skotnir nærri Baqouba.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×