Óveður á Taívan og Mexíkó 18. júlí 2005 00:01
Öflugir stormar ollu manntjóni og miklum skemmdum í dag. Á Taívan fórust nokkrir þegar hvirfilbylurinn Haitang reið yfir og tugir þúsunda ferðamanna flýðu fellibylinn Emily í Mexíkó. Þeirra á meðal var hópur íslenskra ungmenna. Emily skall af krafti á Yucatan-skaganum í morgun og fór vindhraðinn upp í sextíu metra hraða í verstu kviðunum. Norðurvængur stormsins, þar sem veðrið var verst, lenti beint á bænum Cozumel og sló út rafmagni og símasambandi á strandlengjunni Riviera Maya. Þúsundir ferðamanna máttu hýrast í íþróttahúsum og öðrum neyðarskýlum við heldur frumstæðar aðstæður, þangað sem fólki var smalað þegar um helgina. Margir vildu reyndar ólmir komast úr skýlunum þar sem þar var lítið að bíta og brenna. Alls voru um sextíu þúsund ferðamenn fluttir til, þeirra á meðal hópur íslenskra ungmenna sem tók þátt í ólympíumóti í stærðfræði í bænum Merida. Þegar náðist í einn liðsmanninn fyrir fréttir var stormurinn afstaðinn. Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson sagði að hótelið hefði verið með plan til að passa upp á alla. Fólk svaf í matsalnum þar til fellibylurinn gekk yfir og hann sagði hættuna ekki hafa verið mikla því auga fellibylsins var í hudnrað kílómetra fjarlægð og einnig var fellibylurinn kominn niður á annað hættustig. Ástandið er ekki mikið betra í Taívan, þar sem annar bylur, hvirfilbylurinn Haitang, slasaði tuttugu og tvo á yfirreið sinni í dag. Fjölmiðlar þar segja fjóra hafa týnt lífi en það hefur ekki fengist staðfest. Hálf milljón Kínverja hefur verið flutt frá heimilum sínum í suðausturhéruðum landsins þar sem Haitang stefnir nú þangað.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira