Erlent

Búast við skjálfta nærri Teheran

Jarðskjálftasérfræðingar telja 90 prósenta líkur á að á allra næstu árum muni skjálfti upp á meira en sex á Richter verða í nágrenni Tehran, höfuðborgar Írans. Meira en fimmtíu eftirskjálftar hafa orðið eftir jarðskjálftann í Bam sem varð tugþúsundum manna að bana í lok árs 2003. Sá stærsti þeirra varð 600 manns að bana í síðust viku. Afleiðingar mikils skjálfta nærri höfuðborginni yrðu skelfilegar og þegar hafa verið háværar umræður um að færa borgina. Þeir sem til þekkja segja það hins vegar óraunhæft og telja nær að byrja á því að byggja hús með þetta fyrir augum og styrkja þau hús sem þegar eru fyrir í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×