Erlent

Sjúkdómafaraldur í kjölfar hamfara

Mikil sjúkdómaalda hefur gengið yfir Sómalíu eftir hamfarirnar á annan í jólum. Flóð í kjölfar hamfaranna náðu alla leið að ströndum Afríku og skoluðu á land miklu af eiturefnum. Í nýrri skýrslu frá umhverfiseftirliti Sameinuðu þjóðanna kemur fram að mikill kjarnorkuúrgangur hafi verið losaður í sjóinn umhverfis Sómalíu undanfarin tíu ár og þessum úrgangi hafi skolað á land á annan í jólum, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Í skýrslunni kemur fram að margir íbúar landsins hafi þjáðst af undarlegum meltingarsjúkdómum og húðsjúkdómum undanfarið auk þess sem margir hafi átt erfitt með andardrátt. Óttast er að úrgangnum hafi einnig skolað á land í nágrannaríkjum Sómalíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×