Innlent

Talið að hundur hafi ekið út í sjó

Bíll rann út í sjó á Eskifirði rétt fyrir klukkan tíu í morgun og drapst hundur sem beið í bílnum eftir eiganda sínum. Bíllinn hafði staðið á bílaplaninu við Fiskmarkaðinn á meðan eigandinn rak erindi sitt. Kafari var fenginn til að koma festingum í bílinn og var unnið að því að hífa bílinn upp rétt fyrir hádegi. Ekki er vitað hvort hundurinn hafi átt einhvern þátt í því að bíllinn rann af stað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×