Áburðarverksmiðjunni lokað í sumar 1. mars 2005 00:01
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi hefur runnið skeið sitt á enda. Henni verður lokað í sumar og sekkjun og pökkun látin fara fram í útlöndum. Í vor flyst starfsemi verksmiðjunnar til Eistlands þar sem sekkjun og blöndun áburðarins fer fram undir eftirliti Áburðarverksmiðjunnar. Söluskrifstofan verður á höfuðborgarsvæðinu en áburður afgreiddur frá Grundartanga og Þorlákshöfn. Fimm starfsmönnum Áburðarverksmiðjunnar sem störfuðu við blöndun og sekkjun hefur verið sagt upp störfum og fyrirtækið selt hlutafélaginu Sveitum sem er að stærstum hluta í eigu Kaupfélags Borgfirðinga, Kaupfélags Skagfirðinga og Kaupfélags Héraðsbúa. Kaupverð er ekki gefið upp en Haraldur Haraldsson, oft kenndur við Andra, keypti Áburðarverksmiðjuna ásamt fleiri fjárfestum árið 1999 á 1300 milljónir króna. Starfsemi Áburðarverksmiðjunnar hefur verið í Gufunesi frá árinu 1954 og hvílt á hornsteini sem Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi forseti Íslands, lagði að verksmiðjunni. Fyrir um aldarfjórðungi störfuðu ekki færri en 250 manns í verksmiðjunni en nú verða þeir aðeins fimm. Sigurður Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunnar, segir að nú sjái fyrir endann á löngu þróunarferli. Fyrirtækið hafi smám saman verið að breytast í sölufyrirtæki og þetta sé lokaskrefið í því. Þegar sprenging varð í verksmiðjunni haustið 2001 hófust viðræður milli eigenda hennar og borgaryfirvalda um að leggja verksmiðjuna niður á þessum stað. Reykjavíkurborg eignaðist lóðina og verksmiðjuhúsin í framhaldi af því með það í huga að byggja þar upp íbúða- og iðnaðarhverfi.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ Innlent „Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“ Innlent Skipulagði árásina í Colorado í heilt ár Erlent „Norðan óveður á landinu í dag“ Innlent Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu Innlent Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Innlent Með sömu óásættanlegu kröfurnar Erlent Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Innlent Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Innlent Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Innlent Fleiri fréttir Nóttin róleg hjá björgunarsveitum Turnarnir svínvirka en fegrunaraðgerðir í farvatninu „Norðan óveður á landinu í dag“ Fundaði með borginni: „Hef upplifað ýmislegt en aldrei svona grimmd“ „Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“ Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fundað vegna örtraðarinnar í höllinni Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Vilja ný og öruggari bílastæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar Óveður, yfirlið á tónleikum og málahali Ákváðu að stöðva ekki tónleikana: „Þá fyrst hefði skrattinn hitt ömmu sína“ Hvergi af baki dottinn og fer með áminninguna fyrir Landsrétt Flutt á sjúkrahús eftir bílslys á Háaleitisbraut „Yfirgnæfandi líkur“ á að Oscar fái íslenskan ríkisborgararétt Útskrifaður samdægurs eftir hnífaárás á Húsavík Gæti komið til lokana á vegum Selfosskirkjugarður að fyllast Í haldi grunaður um að hafa valdið alvarlegum áverkum Ungmenni réðust á varnarlaust fórnarlamb í skógræktinni á Akranesi Brottvísun Oscars frestað Segir vegið að rétti fatlaðra við uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit Veitingamaður með langan brotaferil hlaut þunga sekt Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Áminning Höskuldar stendur Þarf ekki að víkja úr dómsal: „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“ Frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kíló í eftirdragi Slæmt að fá hret á varptíma Verða boðaðir á fund lögreglu Lögregla boðar tónleikahaldara á sinn fund Sjá meira