Opnar ótal möguleika 25. febrúar 2005 00:01
Flugleiðir og flugvélaverksmiðjan Boeing undirrituðu í gær samning um framleiðslu á tveimur Boeing 787 Dreamliner-breiðþotum fyrir áætlunarflug Flugleiða og kauprétt á fimm vélum til viðbótar. Flugvélarnar verða afhentar árið 2010. Heildarverðmæti vélanna tveggja er fimmtán milljarðar króna og verði kauprétturinn nýttur er heildarverðmæti samningsins rúmlega 50 milljarðar króna. Boeing 787 er langdrægari en aðrar vélar í flota Flugleiða. Núverandi markaðssvæði fyrirtækisins telur um 700 milljónir íbúa, en nýju Boeing-vélarnar munu geta flogið beint til næstum hvaða staðar sem er í heiminum. Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, segir að með samningnum sé fyrirtækið að horfa til framtíðar og í kaupunum felist yfirlýsing um vöxt í starfsemi Flugleiða á næstu árum. "Við munum þróa leiðarkerfi okkar á nýja og fjarlægari staði á næstu fimm árum." Hannes segir vélina henta vel til flugs á vesturströnd Bandaríkjanna þangað sem Flugleiðir eru þegar byrjaðar að fljúga. "Við erum líka klárlega að líta til Asíu og Rússlands. Þar gætu stórir markaðir opnast fyrir okkur en þar eru óteljandi möguleikar í til dæmis fraktflugi." Marlin Daily, varasölustjóri Boeing í Evrópu og Mið-Asíu sagði að kaupsamningurinn væri til marks um að Flugleiðir einbeittu sér ekki aðeins að deginum í dag, heldur hefðu líka sýn til að nýta sér tækifærin sem liggja handan við hornið. Nýju Boeing 787 flugvélarnar taka 220 til 280 farþega auk tuttuga tonna í frakt. Vélin er 60 metra löng, með 56 metra vænghaf og 15.700 kílómetra flugdrægni. Vélinni er ætlað að vera svar Boeing við Airbus-flugvélinni sem mun taka fleiri farþega en nokkur önnur vél í heiminum. Flugleiðir eru fyrsta flugfélagið í Evrópu til að festa kaup á Boeing 787 flugvélum, en fimmtán önnur flugfélög í heiminum hafa einnig gert kaupsamning við Boeing.
Fréttir Innlent Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira