Actavis með 93% af markaðinum 25. febrúar 2005 00:01
Actavis ræður 93 prósentum af samheitalyfjamarkaðinum á Íslandi. Ríkið er stærsti viðskiptavinurinn en Tryggingastofnun ríkisins telur að ekki sé teljandi verðmunur á samheitalyfjum og frumlyfjum á Íslandi. Deildarstjóri lyfjamála þar segir fulla ástæðu fyrir Samkeppnistofnun að kanna málið. Blóðþrýstingslyfið enapril frá Actavis, sem kostar 450 íslenskar krónur út úr dönsku apóteki, kostar 3350 krónur út úr apóteki á Íslandi. Þetta er aðeins eitt dæmi um þann mikla verðmun sem er á framleiðslu fyrirtækisins milli landanna. 93 prósent allra samheitalyfja sem eru seld hér á landi koma frá Actavis. Það gerir um sautján prósent af öllum lyfjum, frumlyfjum og samheitalyfjum sem eru seld á Íslandi. Actavis framleiðir um eitt hundrað lyf fyrir Íslandsmarkað og veltir hér um 1,5 milljarði á ári. Þar af er ríkið stærsti kaupandinn en Tryggingastofnun ríkisins greiddi um 700 milljónir vegna lyfja frá Actavis. Alls var lyfjakostnaður stofnunarinnar hins vegar 6,4 milljarðar sem sýnir að samheitalyf eru mjög lítið notuð á Íslandi. Inga J. Arnarsson, deildarstjóri lyfjadeildar Tryggingastofnunar, segir að það virðist ekki vera virk samkeppni á íslenska markaðnum og það sé einstakt fyrir íslenska markaðinn hversu lítill munur sé á verði á frumlyfja og samheitalyfja. Erlendis sé oftar en ekki mikill verðmunur en af einhverjum ástæðum virðist samkeppnin ekki vera fyrir hendi hér. Full ástæða væri fyrir Samkeppnisyfirvöld að kanna þetta mál. Actavis framleiðir um fimmtán samheitalyf fyrir danskan markað. Þar eru lyfin seld fyrir margfalt minna verð en hér. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að skýringarnar felist í of harðri samkeppni í Danmörku og smæð markaðarins hér á landi. Þá valdi lítið upplag auknum kostnaði. En frá sjónarhóli hins íslenska viðskiptavinar má kannski frekar spyrja sig hvort samkeppnin sé of lítil hér.
Fréttir Innlent Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira