Krefjast milljónatuga bóta 20. febrúar 2005 00:01
Iðnaðarráðuneytið hefur heimilað Landsneti að taka þrjár jarðir eignarnámi svo unnt sé að leggja Fljótsdalslínur 3 og 4 en um þær verður rafmagn leitt frá Kárahnjúkavirkjun til álversins í Reyðarfirði. Ráðuneytið hafnaði hins vegar ósk um eignarnám tveggja jarða til viðbótar á þeim forsendum að ekki þætti sýnt að samningar hafi verið reyndir til þrautar. Eignarnámið nær aðeins til þeirra hluta jarðanna sem línurnar liggja um. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að almennar forsendur til eignarnáms séu uppfylltar og þess getið sérstaklega að efnahagsleg áhrif stórframkvæmdanna eystra verði mikil og varði fjölda fólks. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, vonaðist til að eignarnám tæki til allra jarðanna fimm eins og óskað var en segir farið í samningaviðræður við eigendur jarðanna tveggja af heilindum. Hann býst þó ekki við miklum árangri. "Ég vona auðvitað að samkomulag náist en held að það sé frekar óraunhæft í ljósi þess hvernig mál hafa gengið fyrir sig. Málið er í prinsippinu peningamál og þetta er eingöngu spurning um bætur." Þórður segir himin og haf bera í milli þess sem jarðeigendur vilja og þess sem fyrirtækið hefur boðið. Hann vill ekki nefna fjárhæðir en segir þær háar. "Þetta eru tugir milljóna sem óskað er eftir og það eru allavega ekki tugir sem var boðið. Það er óhætt að segja það." Matsnefnd eignarnámsbóta mun úrskurða um bætur til eigenda jarðanna sem teknar verða eignarnámi. Nefndin mun líka ákvarða bætur til eigenda jarðanna sem iðnaðarráðuneytið hafnaði eignarnámsbeiðni á, takist samningar ekki. Guðrún Kjartansdóttir sem býr á Áreyjum vill fátt um málið segja en telur úrskurðinn réttlætismál og skilaboð til manna um að vanda til verka þegar land er tekið af fólki. Áreyjar er annar bæjanna sem ekki verða teknir eignarnámi. Áður höfðu samningar tekist við eigendur sextán jarða sem línurnar munu líka liggja um. "Bæturnar voru ekki ósanngjarnari en svo að mikill meirihluti tók því sem boðið var," segir Þórður Guðmundsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira