Vill þyrma þrem húsum við Laugaveg 14. febrúar 2005 00:01
Borgarminjavörður vill þyrma þremur gömlum húsum við Laugaveg af þeim 25 sem borgaryfirvöld hafa leyft að verði rifin. Meðal vegfarenda um Laugaveg voru mjög skiptar skoðanir. Kofarnir mega fjúka, sögðu sumir, á meðan aðrir gráta gamlar minjar. Yfirvöld í Reykjavík hafa leyft niðurrif 25 húsa við Laugaveg sem öll eru byggð fyrir 1918. Ný hús eiga að rísa sem fyrst. Guðný G. Gunnarsdóttir borgarminjavörður er ekki sátt við að þrjú hús af þessum 25 verði rifin. Allt eru það hornhús sem varðveita götumyndina á götuhornum. Guðný segir að að hornhúsin séu mjög vegleg og á síðustu öld hafi þróast sérstakur húsagerðarstíll á hornum. Hornhúsin hafi verið skrautlegri og íburðarmeiri sum hver og til þess að halda einkennum og yfirbragði byggðarinnar séu þau mjög mikilvæg. Húsin sem Guðný vill varðveita eru Laugavegur 11 og 33 ásamt Laugavegi 21, en það er kaldhæðnislegt til þess að hugsa að það eru aðeins örfá ár síðan borgaryfirvöld vörðu nokkrum milljónum í að gera það síðastnefnda upp. Málið er ekki í höfn. Þar sem húsin eru svo gömul þarf umsögn húsafriðunarnefndar og borgarminjavarðar áður en þau verða rifin og auðvitað þarf vilji eigenda þeirra að standa til þess. En hvað skyldi vegfarendum á Laugavegi finnast um þessar fyrirætlanir? Sumum fannst það hreint og beint sorglegt vegna þess að sjarmi væri af þeim en aðrir sögðu það í góðu lagi þar sem mörg þeirra væru kofar sem mættu missa sín. Einn benti á það færi eftir því hvað kæmi í staðinn og annar sagði að ef vel væri að málum staðið væri niðurrifið hið besta mál.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira