Sport

Fiorentina eyðslusamir

Fiorentina keypti í dag rúmenska undrabarnið Valeri Bojinov frá Lecce, en Bojinov þessi er aðeins átján ára og hefur skorað 11 mörk í ítölsku deildinni í vetur. Kaupverðið er um 9.3 milljónir punda og fer Jamie Andreas Valdes, miðjumaður frá Chile, til Lecce sem hluti af kaupverðinu. Talið var að Chelsea hefði áhuga á Bojinov og jafnvel talið að leikmaðurinn myndi fara til Stamford Bridge í sumar, en svo verður ekki. Bojinov er ekki eini framherjinn sem Fiorentina hafa keypt síðasta sólahringinn, en í gær keyptu þeir hinn unga og efnilega Giampaolo Pazzini frá Atalanta á um 5,2 milljónir punda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×